Mánudagur, 3. janúar 2011
Áhrifavaldar ársins 2010
Í dag hafa verið valdir af skemmtinefnd Gullsins eftirfarandi einstaklingar sem áhrifavaldar ársins 2010:
Stjarna ársins: Sigríður Helga Ástþórsdóttir fyrir frábæra frammistöðu á Jólaperlum 2010 og í söngleiknum Lion King
Stjörnuhrap ársins: Ylfa Lind Gylfadóttir fyrir að hafa ekki tekið þátt í Sölvakvöldinu, en hún hefur verið stjarna þess um árabil
Fallegasta stelpan 2010: Rakel Hlynsdóttir, en hún er eins þeirra örfáu einstaklinga sem fá fegurð og glæsileika Gullsins til þess að fölna í samanburði
Fallegasti Strákurinn 2010: Andri Ólafsson, en hann náði þeirri ótrúlegu hæð að koma Gullinu í heljar klandur
Gleðigjafi ársins: Arndís Ósk, en hún breiðir út gleði og fjör allstaðar sem hún kemur
Djammari ársins: Birkir Thór Högnason, en honum tókst að djamma 44 mislangar helgar á árinu sem leið og taka hundruðir ljósmynda sem í 90% tilfella eru ekki birtingarhæfar. Þær eru þó geymdar á tryggilegan hátt og kunna að koma í bakið á fólki síðar á æviskeiði þess.
Statusari ársins: Ágúst Halldórsson, en hann hefur kætt hug og Hjörtu facebook vina sinna á árinu með snilldar skrifum.
Lélegasti Facebook-arinn: Er án efa Egill Óskarsson, en hann á metið í skelfilegum statusum.
Babe ársins: Kolbrún Inga Stefánsdóttir og félagar, en hún er babe frá náttúrunnar hendi og gerði hún og vinkonur mörgum karlpeningnum erfitt fyrir með búningum sínum á þjóðhátíðinni í ár.
Fífl ársins: Sá sem ber ábyrgð Land.. sand.. eða whatever sem þessi höfn þarna á að heita
Snillingar ársins: Bylgja Haraldsdóttir og Sigríður Mist fyrir að snúa heilu fyrirtæki á hvolf
Par ársins: Gunnar Hreindal og frú, fyrir að halda heilu hóteli andvaka í þrjár nætur
Slys ársins: Faceplantið sem átti sér stað helgi eina á Síldarvertíð...... Say no more...
Hrós ársins: Fá aðstandendur styrktartónleikanna til handa Ægi Íþróttafélagi.
Illkvittni ársins: Sveinbjörg Ósk Hauksdóttir, fyrir að hringja alltaf í mömmu sína af djamminu um miðjar nætur.
Gull ársins: Elín Sólborg Eyjólfsdóttir, fyrir framlag sitt til Íslenskrar fegurðar
Lélegasti veiðimaðurinn: var enn eitt árið gaurinn sem náði að láta héra fíflið sleppa inn í þennan eina kofa sem stóð í skóginum
Dúett ársins: Birkir Thór og Sóley Guðmundsdóttir fyrir ógleymanlega útgáfu af Paradise by the Dashboard light
Maður/kona ársins: Vala Grand fyrir framlag sitt til Íslenskrar Þáttargerðar
Hommalega Kvennagullið þakkar fyrir árið 2010 og hlakkar til þess að stúdera árið 2011 :)
http://www.facebook.com/hommalega.kvennagullidLífstíll | Breytt s.d. kl. 04:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 22. júní 2010
Birtingamyndir umtals og kjaftasagna....
Fólki finnst gaman að tala um aðra. Held við séum flest "sek" um það. En stundum er það líka bara allt í lagi. Við getum nú ekki bara látið sem við viljum ekkert vita um einn eða neinn. En það má passa sig...
Til eru 4 tegundir af umtali og Kjaftasögum.. Sumar eru góðar - aðrar slæmar - enn aðrar hreinlega ljótar. Kíkjum á þetta:
1. tegundin - FRÉTTIR/STAÐREYNDIR - Hvað er að frétta af Svölu?
Þarna fer af stað umræða um Svölu sem í flestum tilvikum á rétt á sér. Þarna er hægt að tala um að Svala hafi verið að útskrifast, eignast barn, það gangi vel í nýju vinnunni o.s.frv. Það er aldrei hægt að komast hjá því að ræða fólk að þessu leyti. Við viljum nú vel flest frétta af okkar fólki beint og óbeint. Umræða oft og iðulega af hinu góða enda segir fólk þá frá því sem það veit og hefur oft beint eftir umræddum aðila eða vegna þekkingar á viðkomandi - en oft geta þó einhverjir aðilar tekið umræðuna á annað stig t.d. létt slúður.
2. tegundin - LÉTT SLÚÐUR - Veistu hvað ég var að heyra?
Létt slúður er yfirleitt ekki dramatískt. Svala gæti til dæmis hafa verið mjög ölvuð síðasta laugardag og þykir sumum það saga að segja frá. Jafnvel kastaði hún upp yfir dansgólfið. Létt slúður er nær alltaf satt og breiðist hraðar út en annað slúður því flestir þola að heyra það og/eða segja frá því. Létt slúður skaðar yfirleitt engan en í flestum tilvikum myndi hinn umræddi helst vilja að fólk bara gleymdi því en getur samt hlegið af því sjálfur.
3. tegundin - ALVARLEGT SLÚÐUR - Guð minn góður á ég að segja þér svolítið??!!
Slúður er orðið alvarlegt þegar dramatíkin tekur völd. Sagan hefur þá einhvern fót en stækkar, kryddast og verður þéttari milli manna. Þá er fólk farið að ímynda sér að Svala eigi almennt í vandræðum með áfengi án þess þó að fólk hafi nokkra hugmynd um það. Sagan er því farin að skaða alvarlega persónu hins umrædda og fer að valda honum hugarangri. Hópurinn sem heyrir söguna verður þrengri og minnkandi líkur eru á því að hinn umræddi fái nokkurn tíman að heyra söguna sjálfur og geta þannig svarað fyrir sig.
4. tegundin - KJAFTASÖGUR - Nei, nú er mér öllum lokið !! Veistu hvað???
Kjaftasögur eru 95% uppspuni og lygi. Það er yfirleitt fótur fyrir þeim, þ.e. eitthvað sem viðkomandi gerir, segir eða jafnvel bara hvernig hann lýtur út sem kemur þeim af stað. Þær eru dramatískastar af þessu öllu. Þarna er Svala bæði orðinn alki og örugglega á einhverju meiru og hún fór heim með giftum manni síðasta laugardagskvöld. Sannleikurinn er hinsvegar sá að hún var keyrð heim af vinkonu sem hafði áhyggjur af ástandi hennar þetta eina kvöld. Sagan er nú farinn að hafa alvarlega áhrif á líf og umhverfi viðkomandi. Hann fer jafnvel að finna fyrir breytingum í hegðun fólks gagnvart sjálfum sér og skilur ekkert í því. Líkurnar á að hin umræddi fái að heyra söguna sjálfur eru nú hverfandi en áfallið oft mikið þegar og ef að því kemur. Þá er yfirleitt um seinan að svara fyrir sig. Mannorð viðkomandi getur í versta falli verið stór laskað. Kjaftasögur eru ótrúlega lífseigt fyrirbrigði.
Love xxx
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 22. júní 2010
Ekki láta sambandið deyja úr hamingju....
Getur það verið að sum sambönd hreinlega deyi úr "hamingju" ?
ÉG held að sumt fólk sé svo staðráðið í að leita hamingjunnar í sambandinu að það hreinlega gleymi að takast á við það sem kemur upp á hverju sinni. Það er öllu sópað undir teppið fyrir það eitt að brosa. Kannski er það til þess að allt líti vel út á við eða fólk telur sé trú um að alltaf sé allt í lagi.
Fólk talar ekki saman, er hreinskilið og opið hvert við annað. "Jájá" og "neinei" verða algeng svör og með þeim fylgir oft og iðulega lítið og falskt bros.
Hamingjan felst í málamiðlunum fólks. Það er mjög sjaldgæft að sjá tvo einstaklinga með nákvæmlega sömu drauma og það eitt getur skapað hamingjunni hættu ef ekki er hliðrað til. Getur annar aðilinn verið hamingjusamur meðan draumar hins aðilans eru eltir og það jafnvel eingöngu? Það þarf sífellt að takast á við þessa hluti, spjalla saman og taka stöðuna reglulega.
En sumir vilja á einhvern hátt bara brosa, kúra, sofa hjá og haldast í hendur í strætó - tala aldrei raunverulega saman um það sem upp kemur og ímynda sér bara að bleika skýið undir þeim eyðist aldrei upp og hamingjan leysi bara vandan sjálfkrafa.
Það endist aldrei.. á endanum verður parið svo "hamingjusamt" að allt springur...
Love xxx
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 19. júní 2010
Í nótt verður lokatilraun gerð til þess að koma á siðmenningu í Vestmannaeyjum
í nótt verður lokatilraun gerð til þess að koma á siðmenningu í Vestmannaeyjum. Sendinefnd á vegum menntamálaráðuneytisins er þessa stundina á leið til eyjanna um borð í Herjólfi en hana skipa þeir Bubbi Morthens Íþróttafréttaritari, Páll Skúlason Heimspekingur, Sigurbjörn Einarsson Biskup og Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrum leikhússtjóri. Þeim til halds og trausts verður 20 manna hópur úr nýskipaðri sérsveit lögreglunar. Lokað var fyrir allar vatnsleiðslur til Vestmannaeyja í morgun og verður vatni ekki hleypt á fyrr en eyjaskeggjar láta til leiðast að læra mannasiði.
Baggalútur
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 22. maí 2010
OMG! HANN reykir Capri !!
Samfélagið tekur oft og yðulega ákvarðannir fyrir okkur hin. Þetta má og þetta má ekki. Karlar meiga eitt.. Konur annað..
Hér áður fyrr þótti ekki fínt að konur mættu til samkvæmis í buxum en í dag þykir ekkert tiltökumál að þær mæti í barna afmæli með hina svokölluðu camel tá milli fóta.. Það var semsagt bara einhverjum sem datt í hug að setja lög um að það væri í lagi.. ÉG kaus aldrei um það málefni og veit ég hreinlega ekki hvort ég hefði yfirleitt tekið þátt í kosningum um slíkt efni. Enda mín skoðun að fólk skuli klæða sig og hegða sér eins og það vill, innan ramma siðferðisins.
ÉG reyki eins og margir vita Caprí. En það eru svona mjóar og fínar rettur.. jafnvel pínu erótískar. En það er ákveðnum vandamálum háð því íslenskri karlþjóð er mjög misboðið. ÉG er þarna að storka íslenskri karlmennsku á svo alvarlegan hátt að þeir reyna í sífellu að bola mér út úr þeirra hópi og yfirí annan hóp karlmanna. Já - ég hlýt bara að vera hommi. Þið skiptir engu máli hvort ég beri tilfinningar til annara karlmanna eða langi til að klípa þá í rassinn - nei - ég reyki Caprí. Það væri sennilega fyrir löngu búið að brenna mig á máli væri til rannsóknaréttur um málefnið - enda er hér um stóralvarlegt brot að ræða er varðar lagasetningu um íslenska karlmennsku.
Ég las mig til um þessa tegund sígaretta á dögunum og þar kemur hvergi fram að tegundin sé framleidd fyrir konur. Ég sé alveg fyrir mér að það væri svosem hægt að merkja þær eins og channel No.5 "Pour famme" eða "fyrir konur". Sé fyrir mér auglýsingar á borð við "Ertu kona.. viltu finna þína innri feminísku vellíðan.. fáðu þér Caprí.. Pour famme". En hið rétta er auðvitað að þetta eru bara sígarettur eins og hver annar tópaksviðbjóður.
Jæja, best að fá sér eina.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 21. maí 2010
...Við gröfum okkur í fönn...
Lífsglaðir metrosexual karlmenn eru mesta ógn við íslenska karlmennsku sem finna má á þessu landi. Karlmenn sem klæða sig öðruvísi, greiða sér öðruvísi og leyfa sér að gera hluti sem ekki þykja "norm" hjá karlmönnum vekja upp ótta hjá örðum karlmönnum sem finnst á karlmennsku sína ráðist með því framferði.
Íslenskir karlmenn geta verið svo miklir fangar eigin karlmennsku að þeir verða þjakaðir og þjáðir í nærveru þeirra karla sem þora að opna sig og vera bara eins og þeir vilja vera og þeim líður best, þ.e.a.s. þeir sem ekki vilja kenna sig við Víkinga nú eða ekki vilja ropa, prumpa og hlæja svo að því.
Svo langt getur þetta gengið að jafnvel menn sem eingöngu vilja vera snyrtilegir til fara - lýta vel út - jafnvel bara fyrir "stelpurnar" að horfa - hljóta að vilja innst inni klípa í rassinn á næsta íslenska víking sem við hlið hans stendur.
Hommalega kvennagullið finnur oft á tíðum til með íslensku karlþjóðinni þó ekki sé meira sagt :)
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


nkosi
astamoller
storyteller
birgis
bjarkitryggva
bjarnihardar
sigrunb
borgar
gattin
bryndiseva
brandarar
crazyb
egillinn
ellidiv
ellyarmanns
tungirtankar
skotta1980
ea
fvk
gudfinna
immug
gummisteingrims
hannesgi
heidathord
jarnskvisan
rattati
herdis
hreinsamviska
hulda
hognihilm64
ingadagny
ingabesta
jakobk
hannaruna
joningi
kittysveins
loftpudaforgun
birtabeib
maggaelin
omarragnarsson
vestskafttenor
palmig
perlaoghvolparnir
marzibil
sigrunbaldurs
stefaniasig
stebbifr
lehamzdr
steini69
eyverjar
sveinnhj
thelmaasdisar
perlan
thorbjorghelga