Þjóðarsorg

Ég lýsi yfir ÞJÓÐARSORG. Í dag frömdu þingmenn Vg (utan örfárra) verstu svik sögunar við sína kjósendur. Þar ber hæst að nefna háttvirtan, ef ekki vitfirtan, heilbrigðisráðherra Ögmund Jónasson fyrir að segja já við því að sólunda miljarði króna í gæluverkefni samfylkingarinnar þegar hann sjálfur ætlar sér að berjast á móti síðar. Á meðan er heilbrigðiskerfinu Nauðgað með niðurskurði!

Heimili landsins brenna á meðan samfylkingin fær að dunda sér við stefnumál sín. 

Bestu ræðuna átti Árni Johnsen og þá hörðustu átti Birgir Ármannsson.

Svandís Svavarsdóttir átti afgerandi flotta "krossræðu" - en hún talaði harkalega gegn ESB en sagði svo Já.. Enda sáust svipuförin í andlitinu á henni..

 


Lífið er hverfullt!

Ohh ég er svo þreyttur.. og pirraður..  Afhverju geturðu aldrei farið úr skónum á mottunni, það er svo óþolandi að ég þurfi alltaf að færa þá til þegar ég sópa gólfið..  Það er líka alveg sama hve oft ég bið þig um að tyggja með lokaðan munninn, það er alltaf sama smjattið í þér.. Þegar ég er að reyna að hlusta á fréttirnar þarftu alltaf að sitja með prjónanna svo skellur í þeim..  Þegar ég stend tilbúinn við dyrnar þegar við erum að fara að versla, þá þarf ég alltaf að bíða eftir þér - má ekki hárið á þér bara vera eins og það er?.. Hvað er þetta með skáphurðarnar? - þurfa þær alltaf að standa opnar eftir þig, bara til þess að ég þurfi að loka þeim?.. Og afhverju snýrðu bollunum ekki á hvolf þegar þú setur þá upp í skáp..  Afhverju fer hárblásarinn alltaf í gang þegar uppáhalds lagið okkar er í útvarpinu... Ég veit ekki hverju oft ég þarf að slá til þín á nóttunni þegar þú ferð að anda svo hátt að ég varla get sofið.. Þetta er svo pirrandi !

....Stuttu síðar.....

AndersOstberg_RIP

Ohhh ég er svo leiður... og kvalinn... Ég sakna þess svo að sjá ekki skóna þína á gólfinu þegar ég sópa það.. Ég sit einn við borðið og sakna þess að heyra smjattið frá þér þegar þú borðar matinn sem þú elskaðir að ég eldaði.. Mig tekur svo sárt að sjá prjónanna liggja á sófanum þegar ég horfi að fréttirnar - hreyfingarlausa..  Ég sakna þess að horfa á þig greiða yfir fallega hárið þitt - ég þarf að ganga einn út um dyrnar - ég veit ekkert hvað ég á að versla inn..  Ég horfi á skápana, svo líflausa - eins og engin hafi opnað þá dögum saman.. Ég hef ekki orku í mér að ganga frá bollunum inn í skáp... Uppáhalds lagið okkar er útvarpinu - ég hleyp inn á bað - finn ekkert nema hárblásarann þar sem þú lagðir hann frá þér síðast.. Ég get ekki sofnað - ég heyri þig ekki anda lengur..  Þetta er svo sárt !!

 Kæru vinir.. Lífið er hverfullt.. Elskum það sem við eigum.. Við fáum bara eitt tækifæri..


Nefskattur - RUV

ÉG er að greiða minn fyrsta nefskatt af RUV. 17.000 kr komu inn á bráðabirgða útreikninga við skil skattaskýrslu þessa árs.  Þetta varð til þess að ég þarf að borga skattinum í ágúst nk.

Mér finnst þetta hálf ömurlegt.  ÉG skal alveg viðurkenna það að RUV er svosem í lagi sem sjónvarpsstöð en ég bara horfi nánast aldrei á þetta.  Ég bý heima hjá foreldrum mínum og þetta þýðir það að við erum nú 3 sem greiðum samtals 51.000 krónur á ári fyrir að vera neydd til þess að hafa RUV.

Sérstaklega blóðugt þykir mér að það ÞURFA (þetta er skilda) 1.058 íslendingar.. ég endurtek 1.058 íslendingar að greiða nefskatt til þess eins að greiða árslaun útvarpsstjóra !!!!

Einu sinni enn.. Það þarf 1.058 skattgreiðendur til þess að standa undir launakostnaði EINS manns... EINS RÍKISSTARFSMANNS!


Sæl aftur

Nú þegar ég bíð spenntur eftir því að sjá hvað verður með nýja stjórn er kannski kominn tími til þess að tjá sig eitthvað.  ÉG vona nú að heimilin fari að vera í fyrsta sæti og að það fari að glitta í einhverjar alvöru aðgerðir. 

Það er svo sárt að sjá hvern á fætur öðrum missa vinnuna og jafnvel þakið ofan á sér.  Get ekki varist því að hugsa annað slagið - "er ég kannski næstur?"

Nú fer líka að styttast í aðalfund SLFÍ - Fulltrúaþingið.  Þar bíð ég spenntur eftir því að sjá hvort einhverjar tillögur að góðum breytingum nái fram að ganga. 

Á þessum tímum er gott að hafa í huga slagorð SLFÍ, en það á vel við í flestum kringumstæðum en....

"Samstaða er afl sem ekkert fær staðist"


Blindur fær Sýn

 Þetta gamla góða atriði - Sem við Drekinn höfum miklar mætur á :P


Að gista eða sofa..

Oft velti ég fyrir mér, kæru vinir, íslenskri tungu og hvernig við notum hana.

ÉG er nú að velta fyrir mér orðinu "Gisting" eða "að gista".  "Að gista" þýðir að ég best veit "að sofa" - að gista einhverstaðar er að sofa einhverstaðar.  "Ég ætla að gista á hóteli í nótt" getur líka verið "ég ætla að sofa á hóteli í nótt".  EN þýðir orðið "að gista" það sama og "að sofa" ? Ef svo er get ég á sagt í stað: "Ég ætla að fara að sofa núna" - "Ég ætla að fara að gista núna" ?  Eða "ég svaf illa í nótt" - "ÉG gisti illa í nótt" ? :S

Sama er með "gistingu".  Ef boðir er upp á gistingu á hóteli í tvær nætur fyrir ákveðið verð, getur þá auglýsingin verið á þessa leið: "Hótelið býður upp á fimm stjörnu svefn á ótrúlega lágu verði" ?

Hljómar asnalega.. svo ég spyr.. Hvað þýðir eiginlega orðið "Gisting" og sögnin "að gista" ?


Fjallræða Davíðs

Davíð Ég var að hlusta á 50 mínútna ræðu Davíðs Oddsona frá því í gær.. Margt merkilegt sem þar kom fram, og má þessi fyrrum hetja mín og goð eiga, að hann er góður ræðumaður og fyndinn þegar hann þarf..

Ég verð að segja, að þrátt fyrir að vita ekki lengur hverju maður á að trúa (og ætla ég ekki að segja Davíð ljúga), virtist margt mjög trúverðugt sem hann sagði þarna..  Það verður fróðlegt að sjá hvað gerist í framhaldinu..

Endir ræðunnar er þó eitthvað sem mér fannst virkilega.. tjahh.. bara fallegur..  En það voru orð sem Davíð lét falla um vina þjóð okkar í Færeyjum, sem ég hef jú mikil tengsl við.. Og ætla ég að leyfa mér að hafa þau eftir hér:

"Vinir okkar, Færeyingar, settu að minnsta kosti enga slíka afarkosti [að setja sem skilyrði til láns, lausn í ICESAVE deilunni] fyrir sinni aðstoð.  Það hefur verið sagt, að sannir vinir séu þeir hóglátu englar sem lyfta undir mann þegar maður sjálfur hefur misst flugið.  Færeyingar eru þessháttar englar, hafi þeir heila þökk og blessun"


Þetta er allt að koma...

..styttist í að Geir einangrist með ást sinni á stjórn Seðlabankans, einn út í horni.. Hvað gerir hann þá?
mbl.is Stjórnendur Seðlabankans víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins !

Það var mikið að einhver tók ábyrgð á gjörðum sínum á þessu blessaða landi okkar.  Þó þykir mér það sárt að það skuli vera Bjarni og fyrir svona tilla skít.

En Bjarni er maður ársins !!

Óska ég honum velfarðaðar.

p.s. það er alltaf hægt að koma til baka Bjarni minn - Sjáðu félaga þinn Á. Johnsen.


mbl.is Guðni: Bjarni axlar ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Létt Kreppuslúður

Heyrst hefur að einn af mínum beztu vinum, Drekinn, sé nú að farinn að leika í stórmynd.  Myndin er ekki af verri endanum en hann fer með hlutverk Obi-Wan Kenobi í endurgerð af Star Wars myndunum en þær munu að þessu sinni verða um baráttu verkalýðsins gegn Keisaraveldinu, og er aðal sögusviðið Seðlabankinn.

Annars er það að frétta af Drekanum, að hann hyggst ekki taka við stöðu Seðlabankastjóra, eins og ég bauð honum á dögunum heldur halda áfram að læra að fleyta börnum inn í lífið :D

 

Hvetjum drekan til að blogga - www.drekinn.blogspot.com

Lifið heil :D


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband